leikfelag logo
Banner Logo
blog image

Miðapöntun á "sex í sama rúmi".

Blog date

þriðjudaginn, 06.febrúar 2024

Blog text

Nú er hægt að panta miða á sýninguna sex í sama rúmi hér á heimasíðunni eða í miðasölusímanum 868-9706.


Miðaverð á sýninguna er 3.900kr. Hópapantanir fyrir 10 manns eða fleiri þurfa að berast í miðasölusímann.


Kaffihúsið Gísli Eiríkur og Helgi í samstarfi við Leikfélag Dalvíkurbyggðar bíður uppá mat fyrir sýningar. Hægt er að velja um hina margrómuðu fiskisúpu eða leikhúsplatta blönduðum með ýmiskonar góðgæti. 

Verðskrá:

Fiskisúpa, salat og brauð ásamt kaffi/te: 3.290kr

Leikhúsplattinn: 5.500kr (áætlaður fyrir tvo en hægt að útfæra fyrir fleiri)

Það verður frátekið borð á Gísla Eirík og Helga tveimur tímum fyrir sýningu fyrir þá sem panta mat. Einnig er innifalið í miðaverði 10% afsláttur af drykkjum fyrir alla leikhúsgesti tveimur tímum fyrir sýningar og í hléi. 

Leikverkið sex í sama rúmi fjallar um þau Philip og Joanna Markham sem eru hamingjusamlega gift. Philip er útgefandi barnabóka og vinnur á neðri hæð íbúðar þeirra hjóna, ásamt félaga sínum Henry Lodge sem er kvæntur en kviklyndur mjög í hjónabandinu. Henry hefur talið Philip á að lána sér íbúðina þetta kvöld til að eiga ástafund með nýjasta viðhaldinu. Linda, eiginkona Henry veit að hann er henni ótrúr og hún biður Joanna um að lána sér sömu íbúð til að hitta þar mann sem hún ætlar að sofa hjá til að hefna sín á Henry. Alistair Spenlow er í ástarsmabandi við au-pair stúlku Markham hjónanna og þau hafa líka skipulagt ástafund á staðnum þetta kvöld. Hvað gæti farið úrskeiðis?

 
Leikfélag Dalvíkurbyggðar
Skrá inn