leikfelag logo
Banner Logo

Ný heimasíða

Blog date

föstudaginn, 19.janúar 2024

Blog text

Í tilefni af 80 ára afmæli leikfélags Dalvíkurbyggðar, ákvað stjórn félagsins að farið yrði í vinnu við að búa til heimasíðu fyrir félagið, þar sem hægt er að halda utanum sögu félagsins, og eins til þess að segja fréttir að starfinu. Vinna er nú í gangi við að safna saman þeim verkum sem félagið hefur sett upp síðastliðin 80 ár, og munum við með tíð og tíma koma þeim upplýsingum inná vefinn. það er ljóst að starfsemi félagsins er yfirgripsmikil, og mun taka tíma að ná utanum söguna, og koma henni fram svo sómi sé af. Hitann og þungann af vefsíðugerðinni hefur Aron Óskarsson tekið, en hann er leikfélaginu vel kunnur. Hann hefur starfað lengi með félaginu, bæði á sviði og bakvið tjöldin. Stjórn leikfélagsins færir honum bestu þakkir fyrir.

Leikfélag Dalvíkurbyggðar
Skrá inn