leikfelag logo
Banner Logo
blog image

Ævintýrabókin

Blog date

þriðjudaginn, 24.febrúar 2026

Blog text

Nú um mundir standa yfir æfingar á leikverkinu Ævintýrabókin eftir Pétur Eggerz. Ingrid Jónsdóttir leikstýrir verkinu og að því koma yfir 40 manns. Í grófum dráttum er sýningin um Úlfinn í ævintýrinu um Rauðhettu og Úlfinn. Úlfurinn er orðinn leiður á því að lenda í því aftur og aftur að vera skorinn á magan og fylltur af steinum að hann flýr bara yfir í önnur ævintýri sem eru í Ævintýrabókinni. Veiðimaðurinn og Dóra sem er að lesa bókina fara á eftir honum og lenda í ýmsu hjá t.d. Mjallhvíti og dvergunum sjö, Öskubusku, Stígvélaða kettinum og Skógarhöggsmanninum. Frumsýning verður 6 mars, og er von á miðasala hefjist von bráðar.

Leikfélag Dalvíkurbyggðar
Skrá inn